Skip to product information
1 of 1

Klei Atelier

Mánaðarnámskeið - JANÚAR (08.01-05.02)

Mánaðarnámskeið - JANÚAR (08.01-05.02)

Regular price 34.900 ISK
Regular price Sale price 34.900 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Námskeiðið fer fram í Klei atelier á Baldursgötu 36 og er samtals fjögur skipti í einn mánuð frá kl. 18:00-20:30.

Nemendur fá frjálsræði til að skapa einstaka hluti úr leir út frá þeirra hugarheimi og innblæstri. Kenndar verða tvær ólíkar aðferðir í handmótun. 

Farið verður yfir:

  • Tvær helstu handmótunaraðferðir; Coiling og Slab building.
  • Fegurðina í ferlinu
  • Möguleika leirsins og takmörk
  • Grunnatriði í brennslu & glerjun á leir.
Praktík:
Þú þarft ekki að eiga nein áhöld, allt verður til staðar. 
Innifalið í námskeiðinu er leir, brennsla, hollt og nærandi snarl. Te + kaffi frá Sjöstrand.

Hægt er að fá námskeiðið niðurgreitt af stéttarfélagi. 

Dagsetningar námskeiðs:

8. jan
15. jan
22. jan
(Vikupása fyrir alla leirmuni að þorna og fara í hrábrennslu)
5. feb - Glerjunar tími. Allir nemendur fá hlutina sína úr hrábrennslu og geta glerjað hlutina sína með glærum glerung. 

Leiðbeinandi:
Hulda Katarína Sveinsdóttir. 

Hulda Katarína Sveinsdóttir er eigandi og stofnandi Klei atelier. Hún útskrifaðist af Keramikbraut Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2021. Hulda hefur þrívegis tekið þátt í HönnunarMars með sýningar sem tengjast leirnum á einn eða annan hátt ásamt því að hafa sinnt kennslu í Myndlistaskóla Reykjavíkur. 
View full details